|
1 |
Steiktur 2000 Teiknimyndir gerðar í Flash. Sniðugt og sýnir að það þarf ekki að vera flókið.
|
|
2 |
Caoz Teiknimyndafyrirtæki sem byrjaði með Litlu ljótu lirfuna og hefur síðan þá gert myndina um Önnu og skapsveiflur hennar og vinnur nú að teiknimynd um þrumuguðinn Þór sem er þeirra stærsta verkefni fram til þessa.
|
|
3 |
CCP Reyndar ekki teiknimyndafyrirtæki, heldur tölvuleikjafyrirtæki. Það er engu að síður á lista hér þar sem að það notar sömu tækni og notuð er við gerð teiknimynda og hefur auk þess laggt inn mikið framlag til þróunar á hugbúnaði sem notaður er í þessum fræðum.
Stærsta verkefnið þeirra er án efa leikurinn EVE Online sem óþarft er að kynna frekar.
|
|
4 |
Framestore Iceland Framestore fær að vera hér með, þó að það sé ekki íslenskt fyrirtæki, en það er þó með útibú hér sem Íslendingur hefur umsjón með. Að vísu hefur ekkert heyrst neitt um þetta útibú annað en þessi frétt frá Framestore og það fær ekki að vera með á kortinu á meginsíðunni þeirra um hvar þeir eru í heiminum.
En þar sem að þetta er eitt af stærstu fyrirtækjum heimsins í bransanum og hefur unnið til Óskars og Bafta og allt þá fær það að vera á listanum.
|
|
5 |
blenderstuff Glósur sem ég skelli inn svona um það sem ég er að læra hverju sinni í blender. Kemur nokkuð tilvlijanakennt þarna inn, en með tímanum ætti að safnast saman eitthvað af gagnlegum ábendingum.
|