Hannað í Incscape og GIMP, en byrjað með template frá:
SiteGround web hosting Joomla Templates
Tilgangurinn
Skrifað af: Hjörleifur Sveinbjörnsson   

Það er enginn sérstakur tilgangur annar en sá að hafa gaman af því að kynna sér þau tæki og tól sem notuð eru í teiknimyndagerð.  Hér verður semsagt stikklað á stóru um forrit sem rekur á fjörurnar og svo e.t.v einhverjar sniðugar myndir sem dúkka upp. (Hér er ekki verið að græða peninga).

Þegar teiknimyndir.is byrjaði var GIMP eina forritið sem ég notaði og hafði mjög gaman af, en nennti nú ekkert að dunda mér mikið við teiknimyndagerð í því forriti, en gerði þó nokkrar myndir með Óla prik.

 Svo var það árið 2008 að haldið var til Escape Studios í London og lært svolítið á Maya, því það er mjög mikið notað í teiknimyndagerð í dag.  Þetta var vægast sagt skemmtilegur tími og jafnframt mjög gagnlegur, enda efast ég um að til sé betri skóli í akkúrat þessu í Evrópu heldur en Escape Studios.

 Nú eftir að hafa fylgst með á hliðarlínunni í gegnum tímaritið 3D World (sem allir unnendur teiknimyndatækni ættu að gerast áskrifandi af) þá fer nú að koma að því að það verður gripið til aðgerða og hafist handa.

 Svo til að byrja með þá verða hér hlekkir á ýmis tæki og tól sem gagnleg eru og ef ég nenni verður e.t.v. einhver umfjöllun.

 Góðar stundir.

Hjörleifur Sveinbjörnsson

20. október, 2009

 

Valid XHTML and CSS.