Teiknimyndir.is
Eftir að tölvan sem hýsti vefinn hrundi (batteríið á móðurborðinu var búið og við það tókst móðurborðinu einnig að skemma harða diskinn) þá hefur nánast ekkert verið gert í því að koma þessum vef upp aftur þar sem ég hef nú bara verið frekar upptekinn í öðru.
En nú er þetta semsagt allt að koma (tók batterí úr öðru gömlu móðurborði og fann gamlan harðan disk upp í hillu og skellti í)
og ákvað ég að henda hér upp einni Moodle síðu (að vísu ekkert komið inn á hana enn).
Er eiginlega ekki búinn að ákveða hvernig ég vil hafa þessa síðu, en er að pæla í að setja á hana drupal með moodle tengingu, eða joomla með moodle tengingu en hvorutveggja virkar orðið ágætlega saman, þ.e. aðeins þarf að stofna notendur í drupal/joomla og þeir virka í moodle.
Líklegast uppfæri ég bara moodle síðuna í 2.2 og sleppi wordpress/drupal/joomla pælingum (gæti haft það bara til hliðar einhverstaðar en líklegast óþarfi) því moodle getur nú gert mikið til það sem þessi cms kerfi gera, þ.e. er með blog og youtube tengingum og allskonar. Óþarfi að hafa þetta of flókið.
Moodle síðan er hér
Kæru Íslendingar
Guð blessi Blender
14. febrúar, 2012.
Hjörleifur Sveinbjörnsson
PS. Hér eru nokkrar aðrar skemmtilegar síður:
Blender |
Blendernation |
Blenderguru |
Blendercookie